Vitundarvakning
Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins í samstarfi við Samhæfingarstöð krabbameinsskimana, Ungar athafnakonur, Kraft og Lífskraft stendur fyrir nýrri vitundarvakningarherferð í janúar 2026 um legháls-skimanir undir slagorðinu „Leghálsskimanir – lítið mál!.“ Janúar er alþjóðlegur vitundarvakningarmánuður gegn leghálskrabbameini.
Markmiðið með vitundarvakningunni er að efla þekkingu, auka þátttöku og styrkja forvarnir gegn leghálskrabbameini á landsvísu.
Enn greinast um 17-20 konur með leghálskrabbamein á ári og 3-5 látast. Með samstilltu átaki má fækka þessum tilfellum.
Hafðu samband
Hafirðu einhverjar athugasemdir við síðuna, spurningar um vitundarvakninguna, leghálsskimanir eða legháls-krabbamein er velkomið að hafa samband.