Afhverju leghálsskimun?
Markmið með leghálsskimunum er að greina frumubreytingar sem geta leitt til leghálskrabbameins og meðhöndla ef þörf krefur. Þannig er hægt að koma í veg fyrir mein, lækka nýgengi þess og dánartíðni af völdum þess. Hér á landi er konum á aldrinum 23-64 ára boðið í leghálsskimun. Konur á aldrinum 23-29 ára fá boð á þriggja ára fresti og 30-64 ára konur á fimm ára fresti.
Frekari upplýsingar um leghálsskimanir má finna á síðu Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana hér
Einnig er hægt er að lesa meira um leghálsskimanir inni á Heilsuveru og í nýju fræðsluriti inni á vefsíðu Embættis Landlæknis
Hver stendur að baki verkefninu?
Verkefnið er samvinnuverkefni Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins, Samhæfingarstöðvar krabbameins-skimana, Krafts, Ungra athafnakvenna og Lífskrafts.